NOTE: This article is more than 5 years old.
17 December 2019
/

Jólakveðjur úr sendiráði Íslands í Kaupmannahöfn

{image.Description}

Starfsfólk sendiráðsins í Kaupmannahöfn óskar ykkur gleðilegrar hátíðar og þökkum ykkur kærlega fyrir ánægjulega samveru á árinu sem er að líða.
Við hlökkum til komandi árs, en árið 2020 munum við fagna 100 ára afmæli sendiráðsins.

Opnunartími sendiráðsins yfir hátíðarnar er eftirfarandi:
23. desember, opið frá kl. 9-16
24. desember, lokað
25. desember, lokað
26. desember, lokað
27. desember, opið frá kl. 11-15
28. desember lokað
29. desember lokað
30. desember, opið frá kl. 11-15
31. desember, lokað
1. janúar, lokað


☎️Í neyðartilvikum bendum við á neyðarnúmer Utanríkisráðuneytisins, sem er opið allan sólahringinn (+354) 545 0112 og á netfangið help@mfa.is

Kærar jólakveðjur úr sendiráðinu í Kaupmannahöfn