06 May 2024
/

Árni Þór afhenti trúnaðarbréf í Tyrklandi

{image.Description}
Árni Þór Sigurðsson sendiherra og Recep Tayyip Erdoğan forseti Tyrklands

Þann 25. apríl afhenti Árni Þór Sigurðsson sendiherra, Recep Tayyip Erdoğan forseta Tyrklands, trúnaðarbréf sitt.  sem sendiherra Íslands gagnvart Tyrklandi með aðsetri í Kaupmannahöfn. Athöfnin fór fram í forsetahöllinni í Ankara og við sama tækifæri afhentu sex aðrir sendiherrar forsetanum trúnaðarbréf sín.

Á fundi forseta og sendiherra var rætt um tvíhliða samskipti ríkjanna, m.a. á sviði viðskipta, orkumála, menningamála og íþrótta. Auk þess var rætt samstarf á vettvangi alþjóðastofnana, bæði milli ríkisstjórna landanna og þjóðþinga þeirra.

Erdoğan færði Íslendingum sérstakar þakkir fyrir aðstoð við hjálparstörf þegar miklir jarðskjálftar riðu yfir á síðasta ári, en þá fór hópur íslenskra sérfræðinga á sviði aðgerðastjórnunar í rústabjörgun á hamfarasvæðum til jarðskjálftasvæðanna í Tyrklandi.
Staðan í alþjóðamálum, m.a. í mið-Austurlöndum og í Úkraínu var einnig rædd, sérstaklega m.t.t. hlutverks og stöðu Tyrklands.